fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Ræðir stöðu Kobbie Mainoo og útskýrir að ákvörðunin hafi ekki verið erfið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, segir að það hafi ekki verið stór ákvörðun að gefa Kobbie Mainoo tækifæri á ný eftir að hann féll út úr liðinu fyrr á tímabilinu.

Mainoo, sem er aðeins 20 ára, átti erfitt uppdráttar undir stjórn Ruben Amorim og var nánast settur til hliðar. Svo langt gekk að miðjumaðurinn íhugaði að yfirgefa félagið til að fá meiri spilatíma.

Síðan Carrick tók við hefur staða hans hins vegar breyst verulega. Mainoo hefur verið lykilmaður í liði United sem er á fimm leikja taplausu gengi í ensku úrvalsdeildinni.

Carrick þekkir leikmanninn vel og var ekki í vafa um að nýta hann. „Ég hef þekkt Kobbie lengi og unnið með honum frá því hann var mjög ungur. Það sem hann hefur gert á þessum aldri er einfaldlega ótrúlegt,“ sagði Carrick.

Hann bætti við. „Við gleymum stundum hversu ungur hann er enn. Ég er mikill aðdáandi hans og vissi hvað hann getur. Þess vegna var þetta ekki erfið ákvörðun.“

Carrick segir aðaláhersluna nú vera að leyfa Mainoo að finna taktinn aftur. „Við erum ekki að flækja hlutina. Hann er frábær leikmaður með mikla hæfileika,“ sagði stjórinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telur starf Arteta nú í hættu

Telur starf Arteta nú í hættu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Chelsea og Liverpool eltast við eftirsóttan táning

Chelsea og Liverpool eltast við eftirsóttan táning
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Mynd: Áhrifavaldur vekur gríðarlega athygli – Mætti í nánast engu í skíðabrekkuna

Mynd: Áhrifavaldur vekur gríðarlega athygli – Mætti í nánast engu í skíðabrekkuna
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rooney með skilaboð til stuðningsmanna Arsenal

Rooney með skilaboð til stuðningsmanna Arsenal
433Sport
Í gær

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag
433Sport
Í gær

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“