fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Allt brjálað í Portúgal: Vinícius Júnior segist hafa orðið fyrir kynþáttaníði – Setti Mourinho inn í málið

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 22:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinícius Júnior sakaði leikmann Benfica, Gianluca Prestianni, um kynþáttaníð í leik liðanna eftir að hann fagnaði marki sínu. Samkvæmt frásögn Viníciusar lét Prestianni móðgandi orð falla í hans garð og huldi munninn með treyjunni á meðan hann talaði.

Atvikið átti sér stað skömmu eftir að Vinícius hafði skorað glæsilegt mark. Myndavélar náðu því þegar Prestianni nálgaðist hann, huldi munninn og sagði eitthvað sem vakti strax athygli. Vinícius gekk í kjölfarið til dómara leiksins og gerði honum grein fyrir málinu, auk þess sem hann ræddi við þjálfarateymið á hliðarlínunni.

Dómarinn virkjaði verklag sem notað er þegar grunur vaknar um kynþáttaníð. Leikurinn var stöðvaður um tíma á meðan málið var skoðað. Vinícius settist einn í varamannaskýlið og virtist miður sín vegna aðstæðna.

Mark hans var glæsileglt en umræðan eftir leik snerist nær alfarið um atvikið og mögulegt kynþáttaníð. Ekki hefur enn verið gefin út opinber niðurstaða um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti