
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari valdi í dag hóp sinn fyrir komandi leiki við heimsmeistara Spánar og Evrópumeistara Englands í undankeppni HM.
Ísland er í A-deild undankeppninnar og um fyrstu leikina í keppninni er að ræða. Auk þessara liða er Úkraína í hópnum. Efstu tvö liðin í riðlum A-deildar fara á HM og hin tvö í umspil.
Ísland vann sannfærandi sigra á Norður-Írum í október en léku ekki í síðasta opinbera landsleikjaglugga. Þorsteinn segir hafa verið jákvætt að fá frammistöðu gegn Norður-Írum eftir vonbrigði í lokakeppni EM síðasta sumar, þar sem Ísland tapaði öllum sínum leikjum.
„Það skiptir máli að fá sigurtilfinningu reglulega. Eftir vonbrigðin á EM var það mikilvægt og það var gott að klára þá leiki báða mjög sannfærandi. Það hjálpar okkur, að það sé létt yfir okkur þegar við mætum í þetta verkefni sem er allt öðruvísi,“ sagði Þorsteinn við 433.is í dag.
Hann kveðst sáttur með stöðuna á leikmönnum hópsins. „Mér finnst staðan góð heilt yfir. Þær eru margar á fínu róli og þetta lítur vel út. Ég er nokkuð sáttur við það sem er að gerast þarna.“
Báðir leikirnir eru á útivelli og verkefnin afar krefjandi. „Vonin er að við spilum bara vel, gerum vel varnarlega. Eftir þessa leiki þurfum við að geta horft í að við séum sátt við spilamennskuna og að úrslitin séu eitthvað sem við getum verið stolt af.“