fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Sá fjórði sem stýrir liðinu á leiktíðinni

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 17:16

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vitor Pereira er tekinn við Nottingham Forest út leiktíðina og verður þar með fjórði stjóri liðsins á leiktíðinni.

Þessi 57 ára gamli Portúgali tekur við af Sean Dyche sem var rekinn í gærmorgun. Forest situr í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti og hefur aðeins unnið tvo af síðustu tíu.

Pereira þekkir vel til eiganda félagsins, Evangelos Marinakis, en hann stýrði áður Olympiacos og vann tvöfalt með liðinu tímabilið 2014-15. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Wolves en var látinn fara í nóvember.

Forest hafði fyrr á tímabilinu rekið Nuno Espirito Santo og Ange Postecoglou áður en Dyche tók við.

Fyrsti leikur Pereira verður í Evrópudeildinni gegn Fenerbahce á fimmtudag, áður en Forest fær Liverpool í heimsókn í deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti