fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Kári tekur Arnar til bæna vegna viðtalsins – „Þetta er algjörlega galið“

433
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason, fyrrum landsliðs- og atvinnumaður og nú yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, furðar sig mjög á viðtali sem Arnar Gunnlaugsson fór í við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á dögunum.

Landsliðsþjálfarinn fór mikinn í viðtalinu sem hefur vakið gríðarlega athygli og umtal. Sagði hann til að mynda að hann myndi ekki vilja ná árangri með sömu aðferð og Lars Lagerback og Heimi Hallgrímssyni, sem voru landsliðsþjálfarar þegar Ísland náði besta árangri í sögu sinni. Kári var mikilvægur hluti af því liði.

„Hann er náttúrulega bara að aðlaga narratífið sér í vil. Ég get lofað þér því að hann væri alveg til í að fara með liðið á EM ef hann neyddist til að spila smá varnarleik. Það sem er smá frústrerandi þegar maður heyrir svona, og ég veit að hann er ekki að gera lítið úr því sem við gerðum, en þetta kemur þannig út. Þetta er algjörlega galið. Það var miklu erfiðara að komast á stórmót. Þú þurftir að lenda í fyrsta eða öðru sæti í þessum riðlum og þetta voru engir smá riðlar sem við lentum í,“ segir Kári í hlaðvarpinu Chess After Dark.

Íslandi mistókst að komast í umspil um sæti á HM í fyrstu undankeppni Arnars við stjórnvölinn á síðasta ári. Þegar Strákarnir okkar komust á EM 2016 og HM 2018 spilaði liðið agaðan varnarleik en Kári segir það ekki mega gleymast að það var ekki það eina sem liðið hafði í sínu vopnabúri.

„Hann er að upphefja sína leikmenn en staðreyndin er sú að það eru tveir leikmenn þarna sem myndu spila eitthvað (í gamla liðinu), Hákon og Albert. Og þá er ég ekki að segja að þeir myndu endilega byrja. Þetta hljómar eins og við hefðum fengið boltann og neglt honum eins langt fram og mögulegt var og vonað það besta. Staðreyndin er sú að við lendum í því að Kolbeinn meiðist og spilar ekki leik í undankeppni HM. Þú neglir honum ekkert fram á Alfreð, þetta er ekki sami leikmaðurinn. Við þurftum að finna nýjar leiðir og það var bara hörkuspil oft á tíðum. Þetta er algjörlega galinn vinkill að taka. Ætlar hann að tiki-taka sig inn á HM?“

Þess má geta að Kári spilaði undir stjórn Arnars hjá Víkingi og var einnig orðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu áður en Arnar fór til að taka við landsliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn