

Kærasta Dwight McNeil, Megan Sharpley, birti tilfinningaþrungna yfirlýsingu á samfélagsmiðlum eftir að félagaskipti leikmannsins frá Everton til Crystal Palace féllu um sjálf sig á lokadegi félagaskiptagluggans.
McNeil, sem er 26 ára, var talinn á leið til Palace fyrir verðmiða sem hefðu numið um 20 milljónum punda, eftir lánssamning með kaupskyldu. Hann var sagður í læknisskoðun um klukkustund fyrir lok gluggans. Samkvæmt fréttum var búið að skila inn skjölum, en Palace náði ekki að ganga frá pappírsvinnu í tæka tíð og dró sig að lokum út úr samningnum.

Í kjölfarið skrifaði Sharpley langa færslu þar sem hún gagnrýndi harðlega „grimmilegan“ heim fótboltans og þá tilfinningarússíbana sem McNeil hefði verið í. Hún skrifaði meðal annars. „Dwight, ég hef alltaf dáðst að starfi þínu og því hvernig þú hefur helgað líf þitt því að ná því sem aðeins örfáir ná.“ Hún bætti við að fólk geri sér oft ekki grein fyrir þeim erfiðleikum sem fylgi lífi atvinnumanna.
Sharpley sagði síðustu 48 klukkustundir hafa verið sérstaklega erfiðar. „Að fá loforð um fjögur og hálft ár af lífi þínu, ferðalög, læknisskoðanir, samkomulög og undirbúning fyrir að flytja líf sitt hundruð kílómetra og fá það svo tekið af sér á síðustu stundu án skýringa,“ skrifaði hún.
Hún gagnrýndi einnig að engin samskipti hefðu átt sér stað á lokametrunum. „Algjör þögn, ekkert símtal, engin svör. Það hefur sært meira en ég get lýst.“

Hún kallaði þetta lágpunkt á ferli hans til þessa, en sagðist jafnframt vera stærsti stuðningsmaður hans og viss um að hann myndi rísa aftur. Þá vakti hún athygli á geðheilbrigði í fótboltaheiminum. „Við vitum öll hversu stórt vandamál andleg heilsa er. Af hverju er þá í lagi að leika sér með tilfinningar leikmanna bara af því þeir þéna vel?“ skrifaði hún.
Í lokin þakkaði hún Everton sérstaklega fyrir stuðning, meðal annars þegar hún gekkst undir bráðaaðgerð árið 2023. „Stuðningurinn frá félaginu hefur skipt okkur miklu máli,“ skrifaði hún.
McNeil svaraði færslunni síðar sjálfur og sagði. „Ég er enn í myrkri varðandi margt. En ég er leikmaður Everton og mun nota þetta sem hvatningu.“ Hann þakkaði kærustu sinni fyrir stuðninginn og sagðist staðráðinn í að halda áfram.
Því er ljóst að McNeil verður áfram hjá Everton, að minnsta kosti um sinn, eftir dramatískt lokakvöld á félagaskiptamarkaðnum.