fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Sjáðu hvað leikmaður United sendi stuðningsmanni Arsenal eftir dramatíkina í gær

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Amad Diallo lét Arsenal heyra það á samfélagsmiðlum eftir að Manchester United vann 3-2 sigur á Emirates-leikvanginum í gær. Þetta var fyrsti deildarsigur United á vellinum í átta ár.

Sigurinn var dramatískur, en Arsenal komst yfir í 1-0 áður en United sneri leiknum við, Skytturnar jöfnuðu á ný og gestirnir skoruðu svo sigurmark.

Þetta var þriðja tap Arsenal á leiktíðinni. Eftir leikinn svaraði Amad Arsenal-aðdáanda á X, en sá hafði spáð 4-0 sigri sina manna. „Njóttu krakki, eina von ykkar eru hornspyrnur, vertu auðmjúkur,“ skrifaði hann.

Manchester United er í fjórða sæti deildarinnar og mætir Fulham á sunnudag. Það er allt annar bragur á liðinu eftir að Michael Carrick tók við, en hann hefur unnið báða leiki sína hingað til, gegn Manchester City og Arsenal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti