

„Það er ekki leyndarmál að rekstur Sjávarsetursins sé á lokametrum ef kraftaverk eigi sér ekki stað fyrir 10. febrúar klukkan 10:00 en þá fer nauðungarsala á húsinu í gegn. Tilfinningarnar eru yfirþyrmandi og hef ég og mun áfram leita allra leiða til að bjarga rekstrinum eða fjórða barninu mínu,“ skrifar Anna Björk Unnsteinsdóttir, eigandi veistingastaðarins Sjávarsetrið í Sandgerði, Suðurnesjabæ.
Anna Björk fullyrðir að veitingastaðnum sé mismunað þegar kemur að fyrirgreiðslu við fyrirtæki í bænum. Sem dæmi nefnir hún að að bærinn hafi nýlega framlengt samstarfssamning við ferðaþjónustu- og veitingafyrirtækið Garðskaga ehf þrátt fyrir andmæli fulltrúa B lista í bæjarstjórn. Hún segir bæjarskrifstofuna kaupa reglulega mat fyrir starfsfólk en hafi ekki átt viðskipti við Sjávarsetrið síðan árið 2023. Hún skrifar:
„Ég er ekki að krefjast þess að bærinn versli einungis við okkur, en ég bið ekki um annað en að við séum tekin til greina. Við í alvöru þurfum varla meir en að það sé smáá stuðningur!“
Anna Björk skrifar ennfremur:
„Að lokum að þá vil ég koma á framfæri að ef að bæjarstjóri eða einhver annar situr á fjármagni og vill eignast helmings (eða meiri) hlut í okkar ástkæra veitingastað að þá má heyra í mér, sem allra fyrst!“