fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Birta myndband af því þegar lögreglumenn ruddust inn og handtóku Lucy Letby

Pressan
Föstudaginn 23. janúar 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður óbirt myndskeið af því þegar lögreglumenn ruddust inn á heimili hinnar bresku Lucy Letby og handtóku hana verður sýnt í nýrri Netflix-heimildarmynd um þetta óhugnanlega mál.

Letby var handtekin þann 3. júlí 2018 í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á óútskýrðum dauðsföllum og alvarlegum veikindum nýbura á vökudeild Chester-sjúkrahússins á Englandi á árunum 2015 og 2016.

Árið 2023 var hún dæmd fyrir morð á sjö nýburum og tilraun til að drepa sjö til viðbótar. Átti hún að hafa sprautað lofti inn í blóðrás nýburanna sem hafi orðið þeim að aldurtila. Letby var að lokum dæmd í lífstíðarfangelsi, en þrátt fyrir það hafa ýmsir sérfræðingar efast um sönnunargögn málsins.

Sjá einnig: Teymi sérfræðinga segir að hryllilegt réttarmorð hafi verið framið á Lucy Letby – Sögð saklaus af því að hafa myrt sjö ungabörn

Netflix-heimildarmyndin fjallar um rannsóknina á glæpum hennar, en hún mun einnig innihalda brot úr lögregluyfirheyrslum, viðtöl við rannsóknarlögreglumenn og viðtal við móður eins fórnarlambsins. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem aðstandandi fórnarlambs tjáir sig í sjónvarpsviðtali.

Í stiklu myndarinnar, sem ber heitið Investigation of Lucy Letby og var birt í gær, sést Letby liggja í rúminu sínu, augljóslega ringluð, þegar lögreglumaður les henni réttindi hennar og handtekur hana.

Myndefnið, sem tekið var með líkamsmyndavél lögreglumanns, sýnir einnig hvernig hún er leidd út úr húsi sínu í Blacon-hverfinu í Chester, enn klædd bleikum náttfötum og gráum flís-slopp. Í öðru broti sést Letby gráta þegar hún er sett í handjárn og kyssa einn af köttum sínum bless áður en hún er leidd á brott.

Myndin verður frumsýnd um allan heim á Netflix miðvikudaginn 4. febrúar næstkomandi.

Letby, sem er 36 ára, afplánar nú 15 lífstíðardóma án möguleika á reynslulausn eftir að hún var sakfelld fyrir morð á sjö ungbörnum og tilraun til morðs á sjö til viðbótar. Á þriðjudag var staðfest að hún muni ekki sæta frekari ákærum vegna annarra dauðsfalla sem lögregla hafði rannsakað. Letby hefur ætíð haldið fram sakleysi sínu.

Eins og DV fjallaði um í fyrra hafa sérfræðingar efast um sekt Letby. Teymi fjórtán sérfræðinga rannsakaði málið og komst hópurinn að þeirri niðurstöðu að ekkert benti til þess að Letby hefði gerst sek um að hafa myrt börnin og að andlát þeirra mætti rekja til vanrækslu og lélegrar umönnunar á spítalanum.

Hér má sjá stiklu úr myndinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi