fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Leikmaður United sem komst í fréttirnar vegna furðulegra ummæla Amorim á förum

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Amass, varnarmaður Manchester United, er nálægt því að fara á láni til Norwich City eftir að hafa snúið til baka úr láni frá Sheffield Wednesday fyrr í mánuðinum.

Amass komst í fréttirnar í desember þegar þáverandi stjóri United, Ruben Amorim, sagði í blaðamannafundi að hann ætti í erfiðleikum á láni hjá Wednesday.

Ummælin vöktu athygli þar sem þessi 18 ára gamli bakvörður hafði í raun verið einn besti leikmaður liðsins og verið valinn leikmaður mánaðarins í bæði nóvember og desember.

Norwich City eru nú í viðræðum um að fá Amass á láni út tímabilið, en Michael Carrick sér ekki fram á að geta notað hann á Old Trafford út leiktíðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti