fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Les ekki leiðara Morgunblaðsins – blaðið komið langt frá Matthíasi og Styrmi og ekki hægt að elta svoleiðis vitleysu

Eyjan
Föstudaginn 16. janúar 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var mikilvægt að láta ekki stoppa veiðigjaldamálið í sumar. Það var prinsippmál sem varð að fara í gegn. Það var athyglisvert að þegar stjórnarandstöðunni var boðið upp á að styðja breytingar á útlendingingalöggjöfinni í þá veru að ef fólk brýtur af sér hér á landi verði það sent úr landi þá vildi stjórnarandstaðan og sér í lagi Miðflokkurinn ekki taka þátt í þeim breytingum. Á þessum þingvetri fara mörg þingmál, sem stjórnarandstaðan hefur reynt að standa í vegi fyrir, í gegn um Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Þorgerður Katrín - 3
play-sharp-fill

Þorgerður Katrín - 3

Þú ert nefnilega ekki bara utanríkisráðherra, þú ert formaður Viðreisnar og Viðreisn stendur nú fyrir mjög skýra hluti. Hér er frjálslyndur flokkur. Þetta er alþjóðasinnaður flokkur. Utanríkisráðherra, ég tala nú ekki um eins og ástandið er í heiminum í dag og í okkar heimshluta. Þetta er náttúrlega, eins og þau segja, 24/7 starf sem þú ert í. En það þarf líka að sinna flokknum. Hvernig gengur þetta?

„Ég verð bara að segja að það gengur ljómandi vel og það er ekkert bara af því að ég er ein í forystu, heldur erum við nokkur í forystu og við erum með bæði öflugt ráðherralið og mér þykir undur vænt um að finna það þegar ég er að ferðast um landið eða, eins og ég segi, líka er á flugvöllum, að fólk er stolt af því sem ríkisstjórnin er að gera. Ég fæ mikla hvatningu, ég hef ekki upplifað svona áður, að að bara fólk kemur og stoppar mann og segir: „Ég er ekkert ánægð með allt, en ég er svo ánægð með ykkur og þið eigið að halda áfram.“ Það blæs manni byr í brjóst.

Mér finnst líka vænt um það að finna að fólk er mjög ánægt með ráðherra Viðreisnar. Við við sinnum mjög mikilvægum málaflokkum, en það sem meira er, við erum að reyna náttúrlega að gera það sem hægt er að gera og tala fyrir okkar hugsjónum og fara um landið, er að bæði ég og síðan er Daði Már Kristófersson, sem er fjármálaráðherra, hann er varaformaður flokksins og hann sinnir málefnastarfinu af miklum krafti. Og bara núna á laugardaginn, það var stútfullt út úr dyrum hjá okkur þegar við vorum að ræða sveitarstjórnarmál og einhvern veginn hugsar maður, það er bara allt að gerast hjá okkur í Viðreisn. Svo er Sigmar Guðmundsson ritari flokksins og við erum með frábært starfsfólk þar sem Svanborg Sigmarsdóttir er framkvæmdastjóri. Gætum við verið fleiri í þessu? Já, já, eflaust, en við vitum alveg hvert okkar hlutverk er og við finnum kraftinn núna þegar sveitarstjórnarkosningar eru í aðsigi og bara alls konar að gerast.

Hér í Kópavogi, það er fólk í slag um oddvitann heima í Hafnarfirði, sem mér finnst jákvætt. Og svo ekki síst í Reykjavík. Við erum með bara, eins og ég segi, framúrskarandi hóp af fólki sem vill leiða Viðreisn í Reykjavík af því að fólk sér tækifæri í að Reykjavík þarf á breytingum að halda. Reykjavík þarf á Viðreisn að halda og frjálslyndum flokki.

Þú sagðir það réttilega áðan að við erum frjálslyndur flokkur. Ég vil meina það, við erum frjálslyndasti flokkurinn sem er á þingi. Og talandi um þingið, það er náttúrulega þingliðið. Þú getur treyst fólkinu í þingliði Viðreisnar. Ég er ekki að segja að við getum ekki gert það annars staðar, en ég bara horfi á minn flokk og ég sé hvernig þau eru alltaf að verða að verða betur og betur smurt tannhjól. Auðvitað, til að byrja með, komu náttúrlega margir nýir inn, en það eru allir að finna sitt svið og sína fjöl og það er ofboðslega gaman að upplifa það að sjá hvernig þau verða alltaf sterkari og sterkari. Fyrir vikið, þá mun það styrkja líka ríkisstjórnina, en það mun á endanum styrkja Ísland að það er öryggi og festa í stjórninni og baklandið og hryggjarstykkið er náttúrlega þinghópurinn sjálfur.“

Nú les maður, ég er einn af þeim fáu, ég les leiðara Morgunblaðsins og annað ritstjórnarefni þaðan. Það er hamrað á því dag eftir dag eftir dag að nú sé allt að molna hjá ríkisstjórninni. Það er að segja, hver höndin upp á móti annarri. Eða eins og ritstjóri Morgunblaðsins orðaði það einu sinni, hver sáttahöndin upp á móti annarri. Er eitthvað til í þessu?

„Nei. Þú verður að fyrirgefa, en ég er ekki lengur að lesa leiðara Morgunblaðsins og ég er náttúrulega alin upp við það að vera með Matthías Johannessn sem ritstjóra og Styrmir Gunnarsson var líka feikilega sterkur.“

Það hefur dálítil breyting orðið.

„Það hefur mikil breyting orðið á, því miður, og ef maður er að dvelja við það sem Morgunblaðið er að skrifa daginn út og daginn inn, þá væri maður örugglega í fáu öðru heldur en að reyna að afsanna allar þessar samsæriskenningar og þetta er bara kannski að verða hluti af þessum falsfréttum sem eru. Það er svolítið áhugavert hvað er að teiknast upp. Það eru ákveðnir spunameistarar innan Miðflokksins og spunameistarar Morgunblaðsins. En ég vil taka það fram, það er fullt af frábærum blaðamönnum innan Morgunblaðsins og ég myndi segja að það væri miklu meiri meirihluti. En ritstjórnarstefnan er síðan alveg skýr og þeir eru náttúrlega að ganga erinda mjög ákveðinna sérhagsmunaafla og við sáum það bara best í málþófinu í sumar hversu römm var sú taug á milli Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Morgunblaðsins að það sem að var skrifað í Morgunblaðinu var síðan lesið upp inni í þingsal og öfugt. Það var ekki hægt að greina mjög mikla almannahagsmunagæslu af hálfu allra þessara aðila og það er af sem áður var, bæði þegar maður lítur til Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins, því að þetta var ekki svona. En þetta er búið og ég ætla ekki að dvelja, þau eru bara þarna og mega vita það að þjóðin kann þeim ekki miklar þakkir fyrir þetta dellumakerí síðasta sumars. En fyrir vikið þá fundum við einmitt fyrir gríðarlega miklum stuðningi og hvatningu að standa af okkur þessa orrahríð og það var náttúrlega ekki síst Hanna Katrín sem stóð þar í stafni og mátti þola ýmislegt. En við stóðum af okkur það og erum bara í öðrum málum.“

Það var mjög mikilvægt að gefa ekki eftir í svona prinsippmáli.

„Það skiptir okkur mjög miklu máli að þessi prinsippmál, þau komust í gegn. En auðvitað er það þannig að þetta eru þrír ólíkir flokkar en það er mjög sterkt samband á milli mín og Kristrúnar og Ingu. Erum við alltaf sammála? Nei, ekkert alltaf. Við finnum út úr því og við erum ekki að þvæla okkur í einhverja vitleysu eða láta spunameistara ríkisins eða af því, þetta er náttúrlega meira og minna allt undir beinum fjárstuðningi, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af þeim, bara alls engar áhyggjur af ríkisstjórninni. Við erum á fullu núna og við erum að fara að leggja fram okkar þingmálaskrá fyrir vorið. Mér fannst sérstakt allur þessi hávaði, til að mynda í stjórnarandstöðunni eins og Miðflokknum og hluta til úr Sjálfstæðisflokknum varðandi það að taka á málefnum útlendinga. Þegar við svo buðum upp á það að klára til dæmis afturköllun verndar þegar fólk kemur hingað inn og brýtur af sér og þá bara senda það út aftur, eðlilega, að þá í bakherberginu voru þau ekki tilbúin til þess. Þá bara þurftu þau að ríghalda í eitthvað pönk, en þau voru ekki að hugsa um hagsmuni heildarinnar, ekki að hugsa um það að keyra málin í gegn og mér finnst það bara ósköp dapurlegt. En þetta eru mál sem verða auðvitað kláruð núna.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Hide picture