fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Jökull var gómaður við að ræða launamál sín í Krónunni – „Var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, ég er búinn að vera“

433
Laugardaginn 17. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jökull Andrésson, markvörður FH, var gestur Íþróttavikunnar á 433.is og sat í setti með Helga Fannari Sigurðssyni og Herði Snævari Jónssyni.

Jökull gekk í raðir FH frá Aftureldingu í vetur en hann var nálægt því að ganga í raðir félagsins í fyrra, áður en hann var sannfærður um að taka slaginn með uppeldisfélaginu í efstu deild.

„Ég talaði rosalega mikið við FH í fyrra og það var komið langt. En Mosó geðveikin náði að sannfæra mann. Svo núna kom þetta aftur og þetta leit vel út,“ sagði Jökull.

video
play-sharp-fill

Hörður rifjaði þá upp fréttir af því þegar sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson heyrði í Jökli ræða tilboð frá FH síðasta vetur í Krónunni. Fór hann með það í hlaðvarp sitt, Þungavigtina. Jökull hló mikið er hann ræddi þetta mál í þættinum.

„Vá hvað ég nenni ekki að ræða þetta klukkan 10 að morgni. Ég var reyndar að díla við mömmu mína en um FH. Það var kannski verið að tala um samninga og svona í Krónunni í Ögurhvarfinu, ég mun aldrei gera það aftur. Ég gleymi þessu aldrei, þegar ég sneri mér við og sá að Höfðinginn var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, já, ég er búinn að vera.“

Umræðan í heild er í spilaranum.

Meira
Kristján lenti í lygilegu atviki í Krónunni – Þekktur maður gólaði í símann hvað væri verið að bjóða honum í laun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
Hide picture