fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Ákærð fyrir glæpi sem sagðir eru ógna lýðræðinu

Pressan
Mánudaginn 12. janúar 2026 17:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm karlmenn og tvær konur hafa verið ákærð í Svíþjóð fyrir fjölda glæpa sem beindust að tugum manna þar á meðal að opinberum starfsmönnum og kjörnum fulltrúum í Stokkhólmshéraði, fjölmennasta héraði landsins. Þeim glæpum sem beindust að kjörnu fulltrúunum og opinberum starfsmönnum var ætlað að hafa áhrif á opinberar ákvarðanir þeirra og lögreglan og embætti saksóknara segir því ljóst að hinir ákærðu hafi ógnað lýðræðinu.

Fram kemur í umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins, SVT, að meðal þess sem fólkið er ákært fyrir er að hindra umgengni forsjárforeldra við barn, hegningarlagabrot, grófar hótanir í dómsmáli, hótanir í garð opinberra starfsmanna og kjörinna fulltrúa, íkveikju og skemmdarverk.

Einn af þessum sjö er ákærður fyrir alla ákæruliði en um er að ræða karlmann á fimmtugsaldri.

Sá maður, þrír af hinum karlmönnunum auk annarrar konunnar eru ákærð fyrir að ræna þremur börnum undir 15 ára aldri og halda þeim frá heimili þeirra.

Glæpir hinna ákærðu beindust aðallega að starfsmönnum í félagsþjónustu og kjörnum fulltrúum í því skyni að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra.

Sara Norling saksóknari segir brot hinna ákærðu hafa verið skipulögð og mjög alvarleg.

Lögreglan segir þolendur vera um 40 talsins og að markmið hinna ákærðu hafi verið að hafa áhrif á grundvallargildi samfélagsins. Höfuðpaurinn í málinu er sagður dvelja í öðru landi, sem ekki er með framsalssamning við Svíþjóð, og réttað verður því yfir manninum að honum fjarstöddum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans