fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ætlar að hjálpa fólki í jólastressinu í desember

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 09:00

Hildur Kristín Stefánsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir byrjaði að hugleiða eftir að hún lenti í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum. Hún hefur líka brennandi áhuga á taugakerfinu og öðrum náttúrulegum leiðum til að líða betur. Hún opnaði síðuna Anda inn (@anda.inn) á TikTok og Instagram þar sem hún deilir ýmsum fróðleik og ráðum.

Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.

Hlustaðu á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Textabrot úr þættinum má lesa hér að neðan.

Eftir Spánarfrí í febrúar sem átti að endurnæra hana var tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir með stöðugan hausverk í fjóra daga – fyrstu viðvörunarmerkin um að það væri eitthvað að. Hún hafði séð fyrir sér að árið 2025 yðri hápunktur ferilsins, nýbúin að gefa út sína fyrstu sólóplötu og staðráðin í að gefa allt í sköpunina. En líkaminn hafði önnur áform.

Sjá einnig: Hildur var með stöðugan hausverk í fjóra daga eftir Spánarfríið – „Líkaminn er alltaf að segja okkur eitthvað“

Hildur hætti á ADHD lyfjum sem höfðu hjálpað henni mikið á sínum tíma og fór að hugleiða. Hún segist önnur manneskja í kjölfarið og vill hjálpa öðrum að líða betur. Hún miðlar eigin visku og fróðleik sem hún hefur lært í gegnum árin á miðlum Anda inn en ef einhvern tíma er þörf á meiri ró þá er það í jólastressinu í desember.

„Ég ætla að vera sem sagt ekki með jóladagatal heldur svona ró-ladagatal. Ég ætla að hjálpa fólki að finna ró í desember,“ segir Hildur.

@anda.inn Takk hundurinn minn fyrir að vera þolinmóð að labba hægt á meðan ég tók þetta upp 🤝 #öndun #ísland ♬ original sound – anda inn | Hildur Kristín

„Á hverjum degi fram að jólum ætla ég að deila stuttu myndbandi með einhvers konar leið til þess að róa sig niður, hvort sem það er að róa taugakerfið eða öndunaræfing eða einhvers konar líkamsæfingar, bara til þess að hjálpa fólki í jólastressinu að vera ekki að missa vitið.“

Fyrsta myndbandið fer í loftið mánudaginn 1. desember.

@anda.inn Það er eitt sem stjórnar lífi þínu meira en þú heldur 👀 #fyrirþig #andlegheilsa #taugakerfið #íslenskt ♬ original sound – anda inn | Hildur Kristín

Hildur ræðir einnig um þrjú skiptin sem hún lenti í kulnun, hvað breytti öllu fyrir hana og svo margt fleira í þættinum sem má hlusta á hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 4 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum