fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Endalaus hneykslismál liðsmanns Svíþjóðardemókrata – Gat ekki hætt að taka myndbönd af sjálfum sér undir áhrifum

Pressan
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 13:00

Daniel Lönn. Mynd/Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daniel Lönn fyrrum varaþingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi Svíþjóðardemókrata hefur verið ákærður fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni en hann hafði áður verið rekinn úr flokknum fyrir myndbönd, sem höfðu verið í umferð, en á þeim mátti sjá hann undir áhrifum og láta dólgslega en hann hélt þó áfram að starfa fyrir flokkinn.

Það er Expressen sem fjallar um málið. Þar kemur fram að Lönn, sem sagði af sér þingmennsku fyrr á þessu ári, hafi í september síðastliðnum farið út að skemmta sér í bænum Borlänge með vini sínum. Þeir fóru fyrst á bar síðan á næturklúbb og síðan reyndu félagarnir að komast inn á annan bar en Lönn var neitað um inngöngu og var í kjölfarið handtekinn vegna óláta og ölvunar á almannafæri.

Á lögreglustöðinni tóku lögreglumenn eftir að Lönn sýndi merki um fíkniefnaneyslu þar á meðal þurrk í munni, skapsveiflur og var á iði. Þvagsýni var tekið og í því fundust leifar af kókaíni.

Lönn neitaði því að hafa tekið inn fíkniefni en sagði við lögreglumenn þetta kvöld að honum liði einkennilega. Hann væri óvenjulega vel vakandi og hefði getað drukkið meira áfengi en venjulega. Lönn gat ekki útskýrt einkennin sem gáfu til kynna að hann væri undir áhrifum fíkniefna og aðspurður hvers vegna þvagsýnið sýndi merki um neyslu kókaíns taldi hann líklegt að einhver hefði laumað því í drykkinn hans.

Alltaf vesen á djamminu

Lönn hefur áður verið handtekinn í Borlänge vegna vafasamrar hegðunar í skemmtanalífinu. Það gerðist í desember 2022 þegar slagsmál brutust út fyrir utan bar í bænum. Kom fram í lögregluskýrslu að Lönn hafi í það skipti verið afar ölvaður og verið mjög fjandsamlegur í garð lögreglumanna. Þrátt fyrir þetta hélt hann áfram störfum sínum fyrir Svíþjóðardemókrata en auk varaþingmennskunnar var hann sveitarstjórnarfulltrúi í Borlänge og í héraðsstjórn í Dalarna þar sem bærinn er.

Síðasta vor var síðan opinberað að Lönn hafði líkað við færslur á Instagram sem fólu í sér gyðingahatur og hann fylgir fólki á samfélagsmiðlum sem hefur tengsl við nýnasistahreyfingu. Neitaði hann að vera gyðingahatari.

Expressen birti í mars á þessu ári tvö myndbönd af Lönn. Í öðru þeirra mátti sjá hann í átökum við öryggisverði á næturklúbbi í Borlänge og í öðru þeirra var hann sýnilega ölvaður og talaði um hvernig væri að sitja í fangaklefa. Í seinna myndbandinu úthúðaði hann öryggisvörðunum og kallaði þá hórur. Hann jós einnig svívirðingum yfir lögregluna og sagðist ætla að fá sér eina jónu þegar hann kæmi heim. Í kjölfarið ráku Svíþjóðardemókratar Lönn úr flokknum og hann sagði af sér varaþingmennsku og öllum öðrum áðurnefndum opinberum embættum sem hann gegndi fyrir hönd flokksins. Lönn sem er 24 ára hélt hins vegar áfram að starfa fyrir flokkinn og þá sem aðstoðarmaður fulltrúa flokksins í héraðsstjórn Dalarna.

Lönn fullyrðir hins vegar við Expressen að hann sé hættur störfum, sem sveitarstjórnarfulltrúinn hefur staðfest, og muni einbeita sér að námi sínu og reikni með að hann verði sýknaður af áðurnefndri ákæru um brot gegn fíkniefnalögum en málið verður tekið fyrir síðar í mánuðinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman