fbpx
Fimmtudagur 11.september 2025
Fókus

RÚV staðfestir þátttöku í Eurovision 2026 með fyrirvara

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 9. september 2025 09:15

VÆB taka þátt fyrir hönd Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátttaka RÚV í Eurovision hefur verið tilkynnt með fyrirvara um niðurstöðu yfirstandandi samráðsferils innan EBU, vegna þátttöku ísraelska ríkissjónvarpsins KAN í keppninni. RÚV hefur þegar á vettvangi EBU gert athugasemdir við þátttöku KAN í keppninni og mun eins og áður fylgjast náið með þróun þeirra mála á vettvangi EBU og hefur áskilið sér rétt til að hætta við þátttöku í henni ef ekki verður brugðist við með fullnægjandi hætti af hálfu EBU.

Opnað hefur verið fyrir innsendingar laga í Söngvakeppnina 2026 á slóðinni songvakeppnin.is. Eins og áður verða tíu lög valin til keppni hér heima og sigurlagið verður framlag Íslands í Eurovision sem fram fer í Vínarborg í Austurríki í maí á næsta ári, með þeim fyrirvara sem um ræðir hér að ofan.

Söngvakeppnin 2026 verður afar glæsileg, að sögn framleiðenda keppninnar. Fjörutíu ár verða liðin frá því að Ísland tók fyrst þátt í Eurovision, þegar ICY-tríóið hélt til Bergen í Noregi með Gleðibankann og verður þeim tímamótum fagnað í keppninni í ár.

„Við ætlum að fagna þessu 40 ára þátttökuafmæli með veglegum hætti,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar.

„Söngvakeppnin hefur heldur betur glatt fjölskyldur í landinu í gegnum tíðina. Hún hefur laðað að frábært tónlistarfólk og mótað tónlistarsögu landsins með ógleymanlegum lagaperlum. Við hlökkum til að halda áfram á þeirri braut. Við reynum alltaf að toppa okkur,“ segir hann.

Bræðurnir í VÆB sigruðu í Söngvakeppninni 2025 með lagið RÓA og tóku þátt í Eurovision í Basel í Sviss. Lagið hefur síðan verið spilað yfir 25 milljón sinnum á Spotify; þeir hafa komið fram hér á landi allar helgar; og halda í tónleikaferð um Evrópu í byrjun næsta árs. Það má því með sanni segja að Söngvakeppnin og Eurovision opni margar dyr fyrir íslenskt tónlistarfólk.

RÚV hvetur alla laga- og textahöfunda landsins til að senda inn lag. Söngvakeppnin fagnar fjölbreytileikanum eins og alltaf og tekið verður á móti öllum tegundum af tónlist. Öllum lagahöfundum er frjálst að senda inn lög á songvakeppnin.is og mun valnefnd Söngvakeppninnar taka allar innsendingar til umfjöllunar. Niðurstöður verða senda höfundum í síðasta lagi 1. desember 2025.

Frestur til að senda inn lag rennur út á miðnætti miðvikudaginn 8. október.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lepur ekki dauðann úr skel – Mánaðartekjur Spelling afhjúpaðar í skilnaðarpappírum

Lepur ekki dauðann úr skel – Mánaðartekjur Spelling afhjúpaðar í skilnaðarpappírum
Fókus
Í gær

Viagra töflur kærastans hverfa en ekkert bólar á áhrifunum í svefnherberginu

Viagra töflur kærastans hverfa en ekkert bólar á áhrifunum í svefnherberginu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eiginmaðurinn í Coldplay-skandalnum rýfur þögnina

Eiginmaðurinn í Coldplay-skandalnum rýfur þögnina
Fókus
Fyrir 2 dögum

Varst þú að kaupa gallaða fasteign? – Þetta getur þú gert

Varst þú að kaupa gallaða fasteign? – Þetta getur þú gert
Fókus
Fyrir 3 dögum

Næsti kafli björtustu stjörnu Íslands: Kvikmynd, vínyll og ný plata á ensku

Næsti kafli björtustu stjörnu Íslands: Kvikmynd, vínyll og ný plata á ensku
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rick Davies söngvari Supertramp er látinn

Rick Davies söngvari Supertramp er látinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Umdeilda samfélagsmiðlastjarnan óþekkjanleg – Búinn að missa yfir 110 kíló og lét fjarlægja aukahúðina

Umdeilda samfélagsmiðlastjarnan óþekkjanleg – Búinn að missa yfir 110 kíló og lét fjarlægja aukahúðina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Systur keppa í Ungfrú Ísland Teen – „Við horfum á þetta sem frábært tækifæri fyrir okkur báðar“

Systur keppa í Ungfrú Ísland Teen – „Við horfum á þetta sem frábært tækifæri fyrir okkur báðar“