fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Liverpool að undirbúa risatilboð

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 19. júní 2025 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool er að undirbúa stórt tilboð í Marc Guehi hjá Crystal Palace. Telegraph greinir frá þessu.

Liverpool hefur fengið Jeremie Frimpong frá Bayer Leverkusen í sumar og er Florian Wirtz að koma einnig. Þá ætlar enska félagið að láta einn leikmann á móti til þýska liðsins, miðvörðinn Jarell Quansah.

Félagið vill fá miðvörð inn í staðinn og er enski landsliðsmaðurinn Guehi efstur á óskalistanum sem stendur. Hann hefur verið algjör lykilmaður hjá Palace undanfarin ár og hjálpaði liðinu að vinna enska bikarinn í vor.

Þá greinir BBC frá því að Liverpool sé þó einnig til í að sýna þolinmæði varðandi Guehi ef ekki næst samkomulag við Palace og fá leikmanninn frítt þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Í gær

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta