fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Enn eitt nafnið orðað við United

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. júní 2025 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er í leit að nýjum markverði og er enn eitt nafnið orðað við félagið nú, Marco Carnesecchi hjá Atalanta.

Andre Onana hefur ekki staðist væntingar sín tvö ár á Old Trafford og verður honum sennilega skipt út í sumar. Carnesecchi sprakk út með Atalanta á leiktíðinni og segja ítalskir miðlar að United hafi augastað á honum.

Hinn 24 ára gamli Carnesecchi er samningsbundinn í Bergamó í þrjú ár til viðbótar en Atalanta er opið fyrir því að losa hann ef tilboð upp á um 35 milljónir punda berst.

Töluverður fjöldi markvarða hefur verið orðaður við United í sumar. Má þar nefna Martin Bulka, Mile Svilar, Lucas Chevalier, Emi Martinez og Marc-Andre ter Stegen.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti