fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Trump sagður þurfa að velja á milli tveggja slæmra valkosta – Nýfastistar heimta bætur eftir náðun frá forseta

Pressan
Laugardaginn 7. júní 2025 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn í óþægilega stöðu og virðist þurfa að velja á milli tveggja slæmra valkosta eftir að meðlimir nýfasistasamtakanna Proud Boys stefndu ríkinu.

Samtökin Proud Boys eru skilgreind sem öfgahægri eða nýfasísk samtök. Þau studdu við bakið á Trump þegar hann tapaði kosningunum árið 2020 og spiluðu stórt hlutverk í innrás mótmælenda í bandaríska þinghúsið þann 6. janúar árið 2021. Meðlimir samtakanna fengu þunga dóma, en Trump náðaði þá skömmu eftir að hann tók við embætti.

Nú hafa fimm liðsmenn Proud Boys, sem allir fengu náðun, stefnt bandaríska ríkinu þar sem þeir fara fram á um 13 milljarða króna í bætur. Þeir segjast fórnarlömb grófrar og kerfisbundinnar misnotkunar á réttarkerfinu og stjórnarskrá Bandaríkjanna sem hafi verið beitt til að refsa og kúga bandamenn Trump.

Stoltu strákarnir segja að refsing þeirra hafi verið ígildi þess að setja höfuð óvinar á sting fyrir utan borgarmúrinn til að fæla aðra frá því að ögra valdhöfum.

Að mati Huffpost er Trump nú í vandræðalegri stöðu út af þessum málaferlum. Annaðhvort þarf bandaríska ríkið að taka til varna og þar með verja verk fyrri ríkisstjórnar, eða þá að ríkisstjórnin þurfi að verja skattpeningum Bandaríkjamanna til að gera dómsátt við menn sem réðust inn í þinghúsið.

Trump hatar fáa menn meira en forvera sinn, Joe Biden, og mun eiga erfitt með að þurfa að koma ríkisstjórn hans til varna. Hins vegar er talið að það verði óvinsælt í augum kjósenda að skattpeningar þeirra séu að renna í vasa nýfasista sem kærir sig greinilega kollótta um lög og stjórnarskrá landsins.

Samkvæmt stefnu málsins höfðu stoltu strákarnir það skítt í fangelsinu, þeir hafi þurft að verja miklum tíma í einangrun við óásættanlegar aðstæður.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann
Pressan
Í gær

Hlið helvítis er að deyja út

Hlið helvítis er að deyja út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google
Pressan
Fyrir 2 dögum

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri