Þrjár vikur eru síðan hin 17 ára gamla Pheobe Bishop hvarf sporlaust í borginni Queensland í Ástralíu. Hún hefur hvorki fundist lífs né liðin en engu að síður hefur lögregla tilkynnt foreldrum hennar að hún sé látin og hafa tveir verið handteknir og ákærðir fyrir morð.
Þau handteknu eru kona og karl á fertugsaldri, James Wood og Tanika Bromley. Þau kynntust Bishop nokkrum vikum áður en hún hvarf og buðu henni að flytja inn á heimili sitt. Þann 15. maí áttu Wood og Bromley að skutla ungu stúlkunni upp á flugvöll, en Bishop skilaði sér aldrei í flugið, og farangur hennar hefur heldur ekki komið í leitirnar. Heimili Wood og Bromley sem og bifreið þeirra hafa nú verið úrskurðuð vettvangur glæps, bæði eru í gæsluvarðhaldi og verða leidd fyrir dómara á morgun.
Ákærur voru gefnar út í málinu nokkrum klukkustundum eftir að vinir Bishop deildu færslum á samfélagsmiðlum þar sem þeir bentu á að svo virtist sem að Bishop hefði nýlega verið virk á Facebook, en grænn punktur hafði ítrekað birst á Facebook-aðgangi hennar sem bendir til þess að notandinn sé skráður inn og virkur á Facebook. Þetta þótti vinunum grunsamlegt þar sem ekkert hafði spurst til Bishop í þrjár vikur og eins hafði engin virkni verið á greiðslukortum hennar. Þótti þetta benda til þess að einhver annar hefði farsíma hennar undir höndum og væri að nota hann. Vinirnir tilkynntu þetta til lögreglu og til móður Bishop.
Lögregla tilkynnti í gær að leitinni að Bishop yrði hætt. Rétt áður en hann var handtekinn ræddi Wood við fjölmiðla þar sem hann lýsti seinustu samskiptum sínum við stúlkuna. Hún hafi verið á leið í flug til að hitta kærasta sinn og verið stressuð um hverju hún ætti að pakka. Hún hafi misst stjórn á skapi sínu og meðal annars brotið sjónvarpið á heimilinu. DailyMail Australia ræddi við Wood.
„Hún svaf yfir sig og þegar hún vaknaði varð hún brjáluð. Hún verður svona stundum og oftast getum við róað hana en hún tvíefldist bara þarna og svo braut hún sjónvarpið. Síðan byrjaði hún að góla um að eiga engin föt til að fara í og hún var svo stressuð fyrir því að hitta kærastann sinn í fyrsta skiptið því hún vildi líta vel út. Og ég skildi það vel, hún er unglingur og heldur að þetta sé stóra ástin í lífinu. Ég greip splunkunýjar joggingbuxur sem ég átti, kastaði þeim til hennar og sagði henni að fara í þær, en hún sagðist ekki vilja taka þær því ég átti þær, en svo sagði hún OK og fór í þær“
Wood sagði að Bishop hefði flutt inn til þeirra þar sem hún gat ekki lengur búið á sínu eigin heimili. Hún væri skapstór en að öðru leyti góð stúlka. Wood sagði að hann og Bromley hafi skutlað táningnum upp á flugvöll morguninn sem hún hvarf. Bishop hafi enn verið í uppnámi í bílnum og þau hafi rifist öll þrjú. Loks hafi Wood stöðvað bílinn nærri flugvellinum og skipað öllum að fara út. Hann og Bromley fengu sér göngutúr og ætluðu að gefa stúlkunni tíma til að jafna sig. Þegar þau sneru til baka hafði Bishop verið horfin. Bromley og Wood héldu þá að stúlkan hefði sjálf gengið að flugvellinum. Þau keyrðu um svæðið í nokkra stund til að staðfesta þann grun sinn og þegar þau fundu ekki stúlkuna ályktuðu þau að hún væri komin um borð í vélina, örugg.
Wood þvertekur fyrir að hafa unnið stúlkunni mein. Það var ekki fyrr en morguninn eftir, eftir að Wood fékk skilaboð frá systur Bishop, sem hann áttaði sig á því að hún væri týnd.
Móðir Bishop hafði haldið í vonina um að Bishop væri á lífi, en hún birti í dag færslu og sagði að lögregla hefði tekið af öll tvímæli. Dóttir hennar væri látin. Móðirin sagði að heimur fjölskyldunnar hefði hrunið í dag og nú skipti öllu að finna líkamsleifar Bishops svo hægt væri að leggja hana til hinstu hvílu. „Ég grátbið alla sem vita eitthvað að gefa sig fram. Við þurfum að leggja hana til hinstu hvíldu, við þurfum að gefa henni frið.“