fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Þetta nota píparar til að hreinsa niðurfallið á 30 sekúndum – Þú átt þetta efni í eldhúsinu

Pressan
Þriðjudaginn 17. júní 2025 13:30

Matarsódinn gerir kraftaverk á heimilum og nauðsyn að eiga hann til í eldhúsinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú hefur lent í því að niðurfall stíflist, þá veistu auðvitað hversu pirrandi það er að vatnið rennur löturhægt niður um niðurfallið, ef það þá rennur niður.

Margir hafa eflaust prófað hið klassíska húsráð að setja lyftiduft og edik í niðurfallið. Þá byrjar að krauma af krafti en oft endar þetta bara með vonbrigðum því stíflan losnar ekki.

En margir vita ekki að það er til mun betri lausn á þessu og hún virkar miklu betur og er þess utan umhverfisvæn, ódýr og virkar hratt. Lausnina er að finna í eldhússkápnum þínum!

Þetta segir hreingerningargúrúinn Ben Gin, sem er óspar á að deila af þekkingu sinni á Instagram-reikningi sínum. Hann segir að töfralausnin sé ósköp venjulegur matarsódi.

Þetta er ekki grín því matarsódi býr yfir eiginleikum sem leysa upp fitu, matarleifar og drullu á miklu áhrifaríkari hátt en blanda af ediki og lyftidufti. Merkur skýrir frá þessu.

Aðferðin er einföld. Taktu lúkufylli af matarsóda og settu í niðurfallið. Strax á eftir skaltu látu heitt vatn renna í það. Bíddu í um hálfa mínútu og stíflan er vonandi horfin!

Ef hún hverfur ekki við þetta þá er hægt að láta blönduna liggja í niðurfallinu í 30 mínútur og jafnvel í nokkrar klukkustundir. Síðan er bara að skola með heitu vatni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“
Pressan
Í gær

Paradísareyjan sem enginn vill búa á

Paradísareyjan sem enginn vill búa á
Pressan
Í gær

Voru skotin samtals 17 sinnum en lifðu af

Voru skotin samtals 17 sinnum en lifðu af
Pressan
Í gær

Grínaðist með að hún ætti kannski ekki að fara í fallhlífarstökk á föstudaginn þrettánda

Grínaðist með að hún ætti kannski ekki að fara í fallhlífarstökk á föstudaginn þrettánda
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geta konur ratað?

Geta konur ratað?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hann er kokkur á líknardeild – Þetta er rétturinn sem hann er oftast beðinn um

Hann er kokkur á líknardeild – Þetta er rétturinn sem hann er oftast beðinn um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu