fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Valur staðfestir kaup á Stefáni Gísla – Gerir fimm ára samning

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 20. apríl 2025 11:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varnarmaðurinn efnilegi Stefán Gísli Stefánsson skrifaði um helgina undir fimm ára samning við Knattspyrnudeild Vals. Stefán sem fæddur er árið 2006 á leiki fyrir U16 og U17 ára landslið Íslands auk þess sem hann er hluti af hinu gríðarlega sterka U19 ára liði. Stefán kemur til Vals frá Fylki þar sem hann hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 21 leik í meistaraflokki og þar af fimm leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.

„Þessi samningur sem við erum að gera við Stefán Gísla er dæmi um það sem við í stjórninni hjá Val viljum leggja áherslu á. Þarna er á ferðinni strákur sem við höfum fylgst með lengi og tikkar í mörg box hjá okkur. Við sjáum það bæði á öllum tölum og hvernig karakter hann er að þarna er leikmaður sem passar fullkomlega inn í þá stefnu sem við erum að vinna eftir. Það er ekki tilviljun að við gerum svona langan samning við Stefán – við trúum virkilega á hann og viljum að hann fái að vaxa í því faglega umhverfi sem við erum að skapa,“ segir Breki Logason formaður meistaraflokksráðs karla hjá Val.

„Við höfum ekki séð marga svona samninga hjá okkur í Val áður, við gerðum reyndar fimm ára samning við Andi Hoti á sömu forsendum í síðasta mánuði, en við teljum þetta nauðsynlegt fyrir félagið til lengri tíma. Við höfum stigið skref í vetur sem eru hluti af þessari vegferð og má þar nefna ráðninguna á Arnóri Smárasyni sem starfar sem tæknilegur ráðgjafi okkar. Þá réðum við inn Chris Brazell sem við fengum sérstaklega til liðs við okkur til að vinna markvisst með okkar efnilegustu leikmönnum. Hann er hluti af þjálfarateymi meistaraflokks og er með 2. flokkinn hjá okkur. Við höfum verið að leggja áherslu á bæði styrk og tækni þegar kemur að yngri leikmönnum en ekki síður verið að styðja þá í öðrum þáttum eins og hugarþjálfun, mataræði og öðru sem er það sem skilur oft á milli. Stefán Gísli er hluti af þessari vegferð sem við vonumst til að muni skila okkur sterkari leikmönnum og enn sterkara félagi,“ segir Breki.

Sjálfur var Stefán Gísli í skýjunum með nýja samninginn.

„Það er ekki nokkur spurning að Valur er flottur klúbbur með mikla sögu og metnað til þess að vinna. Það er samt ekki endilega það sem heillaði mig heldur fann ég það í samtölum mínum við forsvarsmenn klúbbsins núna um páskana að hugmyndir okkar fara saman. Það er verið að hugsa hlutina til lengri tíma og þetta er ákveðin vegferð sem ég ætla að vera hluti af. Hér í Val ætla ég að verða enn betri leikmaður og taka mikilvæg skref á mínum ferli sem fótboltamaður. Ég er afskaplega ánægður með þessa ákvörðun og get ekki beðið eftir því að byrja að sanna mig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést