fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Réttarhöld vegna andláts Maradona hefjast að nýju

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 18:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld vegna andláts knattspyrnugoðagnarinnar Diego Maradona hófust á ný í dag, en hann lést árið 2020, sextugur að aldri.

Fyrri réttarhöld féllu niður í maí 2025 eftir að einn dómaranna í málinu var sakaður um að hafa leyft óheimilar upptökur í réttarsal fyrir heimildarmynd.

Sjö einstaklingar úr læknateymi Maradona eru ákærðir fyrir manndráp af gáleysi, en þeir eru sakaðir um að hafa ekki veitt honum fullnægjandi læknisaðstoð á heimili hans í Tigre í Argentínu.

Þeir neita allir sök en gætu átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsi verði þeir sakfelldir. Talið er að með réttum viðbrögðum og meðferð hefði Maradona átt betri möguleika á að lifa af.

Maradona lést af hjartabilun sem leiddi til vökvasöfnunar í lungum, skömmu eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna blóðtappa í heila.

Um 100 einstaklinar munu bera vitni í málinu, þar á meðal dætur hans, og er gert ráð fyrir að réttarhöldin standi fram í júlí.

Maradona er einn besti knattspyrnumaður allra tíma og er hvað þekktastur fyrir frammistöðu sína á HM 1986, þar sem hann skoraði meðal annars hið fræga mark með „hendi Guðs“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Stuðningsmenn vildu svör frá framherjanum í miðjum fagnaðarlátum

Stuðningsmenn vildu svör frá framherjanum í miðjum fagnaðarlátum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka
433Sport
Í gær

Segir frá síðustu skilaboðunum sem hann fékk áður en bróðir hans tók eigið líf

Segir frá síðustu skilaboðunum sem hann fékk áður en bróðir hans tók eigið líf
433Sport
Í gær

Katrín ósátt með ummæli Jóns um rassgatið á Allison – „Hann þarf að passa sig“

Katrín ósátt með ummæli Jóns um rassgatið á Allison – „Hann þarf að passa sig“