fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Andra var bolað úr starfi á Akranesi – „Var mér kastað eins og hverri annarri kúkableyju“

433
Mánudaginn 13. apríl 2026 18:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ÍA hefur misst einn af sínum þekktari yngri flokka þjálfurum eftir að Andri Júlíusson sagði upp störfum í vetur.

Andri greinir frá ákvörðun sinni í pistli á samfélagsmiðlum þar sem hann segir atvik á æfingu hafa orðið vendipunktur. Þar hafi komið upp óhapp þar sem einn drengur meiddi annan og Andri telur sig hafa átt óbeinan þátt í því. Hann segist hafa brugðist strax við, rætt við leikmennina og að málið hafi verið leyst með sátt.

„ÍA hjartað brotið,“
skrifar Andri.

„Fyrir rúmlega mánuði síðan gerði ég mistök á 5. flokks æfingu, það kom upp leiðinlegt atvik þar sem drengur meiddi annan og ég átti óvart þátt í því. Ég brást strax við og talaði við báða drengina og allir skildu sáttir að lokum, ég bauðst til að hringja í foreldra en yfirþjálfarinn tók það.“

„Ég var gamall sem leikmaður en ungur sem þjálfari. Þetta atvik sat í mér í nokkra daga en eftir viku kom skellurinn. Þrátt fyrir að hafa náð sáttum við drenginn og faðir drengsins var ég boðaður á fund af stjórn ÍA. Formaður barna- og unglingaráðs vildi mig greinilega út úr klúbbnum. Allir sem ég talaði við, meðþjálfarar í klúbbnum, foreldrar og framkvæmdastjórar ÍA og KFÍA voru á minni hlið enda vita þeir hvaða hluti ég gerði fyrir klúbbinn sem ég elska. En einhverjir sem sitja á skrifstofu og hafa aldrei sparkað í bolta vildu mig í burtu. Svo fór að ég sagði af mér sem þjálfari hjá ÍA og Kára (afreksþjálfun, 8. flokk, 6. flokk. 5. flokk 2. flokk og Kára).“

Þrátt fyrir það var hann síðar kallaður á fund með stjórn félagsins. Að hans sögn vildi formaður barna- og unglingaráðs að hann hyrfi úr starfi, þrátt fyrir að hann segist hafa notið stuðnings samstarfsfólks, foreldra og annarra innan félagsins.

Andri ákvað í kjölfarið að hætta störfum, bæði hjá ÍA og Kára, þar sem hann hafði einnig þjálfað.

„Eftir að hafa verið alla yngri flokka, (Íslandsmeistari, bikarmeistari), leikmaður (192 leikir, 73 mörk, í liði sem hefur náð bestum árangri í deild síðan 2003), þjálfari (bikarmeistari tvö ár í röð), gengið í mögulega öll störf innan klúbbsins, allt frá því að mála völlinn, græja búninga, aðstoðaþjálfari, hengja upp fána og fleira, eiginlega allt nema vera aðalþjálfari ÍA liðsins. Pabbi spilaði fyrir ÍA og bróðir minn líka ásamt því að hafa þjálfað, öll börnin mín eru í ÍA og elskuðu það, var mér kastað eins og hverri annarri kúkableyju og er vissulega ÍA hjartað mitt og fjölskyldu minnar mölbrotið,“ s
krifar Andri.

Hann lýsir uppsögninni sem erfiðri, enda hafi hann gegnt fjölmörgum hlutverkum fyrir félagið í gegnum árin, bæði sem leikmaður og þjálfari.

Andri segir að tengsl sín við félagið séu sterk en að brottförin hafi skilið eftir sig sár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést