fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Walsall á Englandi leitar nú manns sem grunaður er um innbrot, en málið hefur vakið athygli vegna þess að hann þykir líkjast fyrrum fyrirliða Liverpool og enska landsliðsins, Steven Gerrard.

Um er að ræða Jack Harrison, 30 ára gamlan, sem er eftirlýstur af West Midlands-lögreglunni. Í færslu lögreglu á samfélagsmiðlum var óskað eftir upplýsingum um ferðir hans og fólk hvatt til að hafa samband ef það sæi hann.

Færslan vakti þó fljótt kátínu meðal netverja sem bentu á líkindi Harrisons við Gerrard. Einn spurði í gríni. „Hvenær lét Stevie G vaxa skegg?“

Annar tók í svipaðan streng og vísaði til þjálfaratíðar Gerrard hjá Aston Villa með léttum tón.

Málið sjálft er þó alvarlegt og lögregla biður almenning um aðstoð við að hafa uppi á Harrison vegna gruns um innbrot.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti