fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Arne Slot heiðarlegur – Veit ekki hvort hann haldi starfinu ef þetta gerist

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að engar tryggingar séu fyrir því að hann haldi starfi sínu ef liðið tryggir sér ekki sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Hann vonast þó til að mat á starfi hans byggist ekki eingöngu á úrslitum.

Liverpool er undir pressu eftir tap á síðustu stundu gegn Manchester City um helgina sem gerði baráttuna um Meistaradeildarsæti erfiðari.

Fram undan er krefjandi leikur gegn Sunderland á útivelli.

Slot var spurður hvort Meistaradeildarsæti myndi ráða úrslitum um framtíð hans hjá félaginu. „Þetta er erfið spurning fyrir mig því ég ákveð ekki framtíð mína sjálfur,“ sagði hann.

„Það eina sem ég veit er að þetta hefur gerst áður nýlega og það hafði ekki áhrif á framtíð þess stjóra. En það tryggir auðvitað ekkert.“

Hollendingurinn vonast til að fleiri þættir verði skoðaðir. „Vonandi er líka horft til frammistöðu, framfara leikmanna og þeirra meiðsla sem hafa haft áhrif,“ segir Slot, sem leggur áherslu á að einbeita sér að því að klára tímabilið af krafti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt