fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 5. júní 2026 16:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Björk Gunnarsdóttir skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Hauka í dag. Snýr hún þar með heim í uppeldisfélagið eftir glæstan atvinnumanna- og landsliðsferil.

Margmenni var í knatthúsi Hauka er Sara Björk var kynnt til leiks í dag, enda eftirvæntingin mikil. Aðdragandinn að þessum skiptum hefur verið langur, allt að fimm ár.

video
play-sharp-fill

„Tilfinningin er ótrúlega góð. Ég er ótrúlega sátt við þessa ákvörðun og líður mjög vel með þetta. Þetta er búinn að vera langur aðdragandi og við búin að vera í miklum samskiptum. Mér fannst eitthvað fallegt við það að koma heim á Ásvelli, þar sem þetta allt byrjaði,“ sagði Sara Björk við 433.is á Ásvöllum í dag.

„Haukarnir hafa bara alltaf staðið við bakið á mér. Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb. Þau hafa gert allt fyrir mig, sérstaklega á þeim tíma sem ég meiddist hérna, gerðu allt til að ég gæti komið til baka. Dóri (Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna) heyrði í mér á árs fresti, til að spyrja hvað ég ætlaði að gera. Mér fannst ekki spurning að koma hingað.“

Sara Björk sagði jafnframt að það hafi alltaf verið fyrsti kostur sinn að koma í Hauka er ljóst varð að hún sneri heim. „Breiðablik heyrði í mér en það var mjög stutt. Haukarnir voru alltaf í fyrsta sæti,“ sagði fyrrum landsliðsfyrirliðinn, sem lék einnig með Blikum hér heima áður en hún hélt út í atvinnumennsku á sínum tíma.

Sara Björk verður fyrst gjaldgeng með Haukum þann 16. júlí, er liðið heimsækir Keflavík.

Ítarlegt viðtal við Söru Björk er í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Enski landsliðsmarkvörðurinn yfirlýsingaglaður

Enski landsliðsmarkvörðurinn yfirlýsingaglaður
Hide picture