

Mjög góðar líkur eru sagðar á því að Aron Einar Gunnarsson skrifi undir hjá Þór og verði leikmaður liðsins í júlí.
Þessu var haldið fram í útvarpsþætti Fótbolta.net. í dag.
Aron Einar lék með Þór í stutta stund sumarið 2024 áður en hann hélt aftur til Katar og samdi við Al-Gharafa.
Aron hefur leikið með liðinu síðustu ár en samningur hans þar er á enda í lok mánaðar.
Samkvæmt útvarpsþætti Fótbolta.net eru miklar líkur á því að Aron mæti í uppeldisfélagið og hjálpi því í Bestu deildinni.
Aron hefur spilað 109 landsleiki fyrir Íslands og er í hópnum sem mætir Argentínu eftir helgi en hann er 37 ára og hefur átt magnaðan feril.