fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. júní 2026 15:30

Eli Junior Kroupi og Granit Xhaka í baráttunni. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal þarf að glíma við harða samkeppni frá Paris Saint-Germain í leit sinni að tveimur sóknarmönnum fyrir komandi tímabil.

Samkvæmt fréttum hefur Lundúnafélagið áhuga á hinum 19 ára gamla Eli Junior Kroupi, sem er á mála hjá Bournemouth, auk argentínska landsliðsframherjans Julián Álvarez hjá Atlético Madrid.

PSG er hins vegar einnig sagt fylgjast náið með báðum leikmönnum og gæti reynt að stela þeim undan Arsenal á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

Kroupi er talinn einn efnilegasti ungi sóknarmaður Frakklands og hefur vakið athygli stórliða með frammistöðu sinni á Englandi. Álvarez þarf vart að kynningu að halda eftir vel heppnuð ár hjá Manchester City og síðan Atlético Madrid.

Mikel Arteta vill styrkja sóknarlínu Arsenal eftir að félagið vann ensku úrvalsdeildina á nýliðnu tímabili og er talið að nýr framherji sé eitt af helstu markmiðum félagsins í sumar.

Ljóst er að samkeppnin um undirskriftir leikmannanna verður hörð ef PSG ákveður að stíga af fullum þunga inn í viðræðurnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool

Tottenham staðfestir komu Robertson frítt frá Liverpool
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar

Stjórnarformaður United uppljóstrar um plön félagsins í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Enski landsliðsmarkvörðurinn yfirlýsingaglaður

Enski landsliðsmarkvörðurinn yfirlýsingaglaður