

Liverpool þarf enn eitt stig til að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili áður en lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram.
Liðið situr í fimmta sæti deildarinnar og er þremur stigum á undan Bournemouth. Markatala Liverpool er þó sex mörkum betri og því ætti það að vera sterkt öryggi fyrir liðið.
Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkennir að Meistaradeildarsæti skipti gríðarlega miklu máli fyrir framtíðaráætlanir félagsins á leikmannamarkaðnum.
„Það hefur klárlega áhrif á okkar áætlanir,“ sagði Slot þegar hann var spurður út í mikilvægi þess að komast aftur í sterkustu félagsliðakeppni Evrópu.
Liverpool stendur frammi fyrir stórum breytingum í sumar. Mohamed Salah er á leið frá félaginu eftir níu ára dvöl og þá er vinstri bakvörðurinn Andy Robertson einnig að kveðja Anfield.
Slot og stjórnendur félagsins undirbúa nú enduruppbyggingu hópsins og telja lykilatriði að tryggja þátttöku í Meistaradeildinni til að laða að nýja leikmenn.
Liverpool mætir Brentford í lokaumferðinni þar sem eitt stig dugar liðinu til að innsigla Meistaradeildarsætið.