fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
433Sport

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 15. maí 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur hafið formlegar viðræður við Michael Carrick um að taka við liðinu til frambúðar samkvæmt enskum miðlum. Félagið er sagt hafa lagt fram tilboð um tveggja ára samning með möguleika á framlengingu til ársins 2029.

Carrick hefur stýrt liðinu tímabundið eftir brotthvarf Ruben Amorim og virðist nú vera orðinn helsti kostur stjórnenda félagsins til framtíðar. Samkvæmt fréttum samþykkti Sir Jim Ratcliffe, einn eigenda United, að hefja samningaviðræður eftir fund framkvæmdastjórnar félagsins fyrr í vikunni.

Omar Berrada framkvæmdastjóri og Jason Wilcox yfirmaður knattspyrnumála eru sagðir hafa mælt eindregið með því að Carrick fái starfið til lengri tíma.

Vonast er til að niðurstaða geti fengist fyrir síðasta heimaleik tímabilsins gegn Nottingham Forest á sunnudag svo stuðningsmenn fái skýr svör um hver muni stjórna liðinu á næsta tímabili.

Þjálfarateymi Carrick er einnig talið líklegt til að halda áfram störfum. Steve Holland, Jonathan Woodgate og Jonny Evans gætu allir skrifað undir nýja samninga, auk markmannsþjálfarans Craig Mawson.

Manchester United hyggst jafnframt styrkja þjálfarateymið enn frekar í sumar og er sérstaklega leitað að sérfræðingi í föstum leikatriðum. Andreas Georgson, sem starfaði áður hjá félaginu, hefur verið nefndur sem möguleg viðbót.

Carrick var sjálfur viðstaddur úrslitaleik FA Youth Cup á fimmtudag ásamt stjórnendum félagsins þar sem U18 ára lið United tapaði 2-1 fyrir Manchester City.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gæti farið frá Liverpool í sumar – Tvör stór félög hafa áhuga

Gæti farið frá Liverpool í sumar – Tvör stór félög hafa áhuga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Chelsea í samstarf við Jay-Z

Chelsea í samstarf við Jay-Z
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hafnfirðingar ausa úr skálum reiði sinnar eftir atburði dagsins – „Hvenær ætla menn að grípa inni í og stöðva þetta rugl?“

Hafnfirðingar ausa úr skálum reiði sinnar eftir atburði dagsins – „Hvenær ætla menn að grípa inni í og stöðva þetta rugl?“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ingvar Jónsson berst við krabbamein

Ingvar Jónsson berst við krabbamein
433Sport
Í gær

Til í að hafna Everton ef Arsenal lofar honum stóru hlutverki

Til í að hafna Everton ef Arsenal lofar honum stóru hlutverki
433Sport
Í gær

Lýsa stórfurðulegri hegðun – Heimtaði að fá að vita hversu oft þau stunduðu kynlíf

Lýsa stórfurðulegri hegðun – Heimtaði að fá að vita hversu oft þau stunduðu kynlíf
433Sport
Í gær

Bikarinn: Stjarnan vann óvæntan sigur á KR – ÍA rétt hafði Grindavík í vítaspyrnukeppni

Bikarinn: Stjarnan vann óvæntan sigur á KR – ÍA rétt hafði Grindavík í vítaspyrnukeppni
433Sport
Í gær

Stirt samband og Suarez fær ekki að fara með á HM

Stirt samband og Suarez fær ekki að fara með á HM