
Cristiano Ronaldo var niðurbrotinn eftir að Al -ssr missti af tækifæri til að tryggja sér meistaratitilinn í Sádi-Arabíu á dramatískan hátt í gærkvöldi.
Al-Nassr virtist vera að vinna gríðarlega mikilvægan sigur gegn Al Hilal eftir mark frá Mohamed Simakan, en aðeins nokkrum sekúndum fyrir leikslok varð markvörðurinn Bento fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Leiknum lauk því 1-1. Þýðir það að Al-Nassr varð ekki meistari í gær og getur Al-Hilal náð þeim í lokaumferðinni. Sigur á Damac dugir Al-Nassr hins vegar.
Ronaldo var niðurbrotinn eftir leik, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.
„Draumurinn er í augsýn. Höldum haus. Við eigum eitt skref eftir,“ skrifaði Ronaldo hins vegar á samfélagsmiðla eftir leik.
CR7 in tears on the bench just minutes before the final whistle 🥹🏆
🎥 @nouhatesyou pic.twitter.com/IkltVpw3BO
— SportyTV (@SportyTV) May 12, 2026