fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason var í dag valinn í íslenska A-landsliðið í fyrsta sinn. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson hefur tröllatrú á framherjanum unga.

Viktor hefur slegið í gegn með FC Kaupmannahöfn á leiktíðinni og vakti sérstaklega mikla athygli í Meistaradeild Evrópu á fyrri hluta leiktíðar. Ætti hann að geta spilað stóra rullu í landsliðinu einn daginn ef allt er eðlilegt.

Arnar ræddi við 433.is í dag í tilefni að valinu á landsliðshópnum, raunar tveimur hópum sem mæta annars vegar Japan 31. maí og Argentínu 10. júní. Viktor er valinn í fyrri leikinn.

video
play-sharp-fill

„Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með hans þróun síðasta árið, það traust og pressu sem klúbburinn hefur sett á hann. Það sýnir að hann er ekki bara þroskaður leikmaður heldur líka þroskuð persóna,“ sagði Arnar.

Uppgangur Viktors hefur verið ansi hraður, en hann kom til FCK frá Fram 2024.

„U-19 ára landsliðið, U-21 árs landsliðið og núna A-landsliðið, sumir gætu spurt hvort þetta sé að gerast of fljótt en miðað við hversu þroskaður einstaklingur hann er vil ég að hann taki sem flest skref og massi þau,“ sagði Arnar.

Getty Images

FCK er þekkt fyrir að kaupa unga leikmenn, breyta þeim í stjörnur og selja dýrt. Má þar nefna Hákon Arnar Haraldsson og Orra Stein Óskarsson, lykilmenn í landsliðinu. Telur Arnar að það styttist í næsta skref hjá Viktori?

„Það kæmi mér ekki á óvart. Þú fylgist með okkar strákum sem hafa farið út þessa nákvæmlega sömu leið. Þeir hafa kannski verið 1-2 árum eldri þegar þeir taka svo skrefið fram á við.

Ef hann verður áfram er það frábært því þetta er frábær klúbbur og greinilegt að þeir setja traust á hann. En klúbbur eins og FCK, þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni. Þeir gera eins vel með hann og hægt er og selja hann svo fyrir góðan pening.“

Ítarlegt viðtal við Arnar má nálgast í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný
433Sport
Í gær

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka
433Sport
Í gær

Hefur fundið ástina á ný – Hjónabandið fór í vaskinn eftir perraskap í vinnunni

Hefur fundið ástina á ný – Hjónabandið fór í vaskinn eftir perraskap í vinnunni
Hide picture