

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari karla hefur valið hóp fyrir vináttulandsleiki gegn Japan og Argentínu
Ísland mætir Japan í Tókýó 31. maí og Argentínu í Bandaríkjunum þann 10. júní. Fyrri leikurinn er utan opinbers landsleikjaglugga og tekur hópurinn mið af því. Er honum raunar skipt í tvennt.
Tíu leikmenn eru í báðum hópum, þeir Hákon Rafn Valdimarsson, Dagur Dan Þórhallsson, Hjörtur Hermannsson, Hörður Björgvin Magnússon, Daníel Leó Grétarsson, Mikael Egill Ellertsson, Logi Tómasson, Andri Fannar Baldursson, Gísli Gottskálk Þórðarson, Kristian Nökkvi Hlynsson
Valið á Ögmundi Kristinssyni markverði Vals fyrir leikinn gegn Japan vekur athygli, Ögmundur fær ekki að spila með Val um þessar mundir og gat því fengið leyfi til að fara.
„Íslenska deildin er í gangi, Noreg og svo eru Svíþjóð líka að spila. Svo fara af stað viðræður við Brentford og Midtjylland, það er augljóst hvernig þær viðræður hafa skilað sér. Hákon getur spilað gegn Japan og Elías og Hákon geta spilað gegn Argentínu, það var vandræði með markmann í þennan hóp. Nafn Ögmundar kom fljótt upp, hann er sterkur karakter og hann var mjög jákvæður í þetta. Ég vænti þess að hann gefi mikið af sér, að hann höndli þetta vel. Við eigum von á því að kynna þriðja markvörðinn á næstu dögum og munum tilkynna þetta,“ sagði Arnar.
Aron Sigurðarson leikmaður KR hafði verið orðaður við sæti í hópnum en það eru menn á undan honum í röðinni að mati Arnars.
„Hann er búin að vera frábær fyrir KR, við völdum hann í Mexíkó og hann komst ekki þar. Besta deildin var úti á móti Japan, hann átti ekki möguleika í þann hóp. Hver á að detta út gegn Argentínu? Samkeppni við hann eru Albert, Kristian Hlyns og Kristall Máni. Þeir eru í samkeppni við hann, mér finnst þeir sterkari en hann í dag.“