
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir enga ástæðu til að deila um VAR-ákvörðunina umtöluðu í sigri Arsenal og West Ham um helgina.
West Ham taldi sig hafa jafnað leikinn í uppbótartíma, en markið var dæmt af eftir skoðun í VAR þar sem brotið var á markverðinum David Raya í aðdragandanum.
De Zerbi ræddi málið eftir 1-1 jafntefli erkifjenda Arsenal í Tottenham gegn Leeds í gær. Gagnrýndi hann dómarana í þeim leik og taldi þá vera undir pressu eftir alla umræðuna um leikinn á London Stadium daginn áður.
„Ég skil ekki umræðuna um VAR-atvikið í gær. Það var brotið á Raya, tvö hundruð prósent. Ekki hundrað prósent, tvö hundruð prósent,“ sagði De Zerbi.
Sigur í leiknum í gær hefði farið langt með að tryggja sæti Tottenham í deildinni en úrslitin þýða að fallbaráttan við West Ham er áfram hörð þegar tvær umferðir eru eftir.
Lærisveinar De Zerbi eru þó í bílstjórasætinu.
"Maybe the VAR felt the pressure after the West Ham Arsenal game … 200% it was a foul on Raya if you want to talk about football."
Roberto De Zerbi on VAR after Spurs vs Leeds pic.twitter.com/1wXPqk9afP
— Hayters TV (@HaytersTV) May 11, 2026