

Það virðist færast í aukana að knattspyrnukonur, og jafnvel karlar líka, togi í hár annarra leikmanna. Tvær hafa fengið að að líta rautt spjald fyrir slíkt í fyrstu umferðum Bestu deildar kvenna.
Það var fjallað um þetta í Bestu mörkunum á Sýn í gær og á Vísi í morgun. Er það í kjölfar þess að Hrafnhildur Salka Pálmadóttir í liði Vals fékk rautt spjald snemma leiks í naumu tapi gegn Breiðabliki í gær.
Í fyrstu umferð fékk Maci Nicole Teater, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, rautt spjald fyrir sama brot. Þetta var rætt í Bestu mörkunum, þar sem Katrín Ásbjörnsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru sérfræðingar.
„Mér finnst þetta ótrúlega skrítið að lenda einhvern veginn í þessu og þær vita betur. Ég er alveg hundrað prósent á því. Það vita það allir að þetta má ekki. Hún mótmælir engu en þetta er örugglega bara í hita leiksins. Þetta er ótrúlega glórulaust,“ sagði Katrín.
„Það er miklu lengra síðan ég spilaði fótbolta heldur en Katrín. Við höfum rætt þetta talsvert, ég einhvern veginn man ekki eftir þessum atvikum þegar ég var að spila. En mér finnst þetta orðið algengara og við erum ekki bara að sjá þetta kvennamegin. Við erum að sjá þetta karlamegin,“ sagði Margrét.
Hér að neðan má sjá atvikið í gær og umfjöllun Bestu markanna.