

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Arnar þjálfaði síðast Fylki í Lengjudeildinni í fyrra. Það var nokkuð frábrugðið fyrri störfum hans, hjá Val og víðar.
„Þetta er flottur klúbbur en það er svolítið bil á milli, þá er ég bara að tala um umgjörð til dæmis,“ sagði hann og kom svo með sögu til samanburðar.
„Ég man ég talaði við David Moyes þegar pabbi hans varð áttræður. Þá var hann að segja mér frá því þegar hann kom til Manchester United eftir mörg ár hjá Everton.
Hann sagði að Everton hafi verið flottur klúbbur og þeir hafi talið sig vera að gera flotta hluti, en þegar hann kom til Manchester hafi þetta verið allt annað. Hann sagðist hafa ætlað að vera grjótharður en þarna var alvöru standard, bara allt annað.“
Nánar í spilaranum.