
Víkingur gjörsamlega valtaði yfir nýliða Þórs í fyrsta leik umferðarinnar í Bestu deildinni.
Elías Már Ómarsson og Óskar Borgþórsson skoruðu tvö mörk hvor í kvöld en Valdimar Þór Ingimundarson og Karl Friðleifur Gunnarsson komust einnig á blað.
Yfirburðirnir voru gófurlegir, eins og markatalan gefur til kynna, en sigurinn fleytir Víkingi á toppin, tímabundið hið minnsta, með 16 stig.
Þór er í sjötta sæti með sex stig, en bæði lið hafa leikið sex leiki.