
KR er enn með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar karla eftir sigur á Stjörnunni í 6. umferð í kvöld.
Stjarnan komst í 2-0 en KR-ingar sneru dæminu við í seinni hálfleik. Aron Sigurðarson, Luke Rae og Ástbjörn Þórðarson gerðu mörkin.
Það var dramatík í Úlfarsárdal þegar Fram og Valur mættust. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Adam Ægir Pálsson komu Val yfir í tvígang en Kennie Chopart og Simon Tibbling jöfnuðu. Jakob Byström skoraði svo sigurmarkið í lokin og unnu heimamenn 3-2.
ÍA er í brasi og tapaði 1-3 fyrir Keflavík á heimavelli í kvöld. Breiðablik tókst þó ekki að vinna FH á heimavelli í fjörugum leik, sem lauk með 3-3 jafntefli.
Úrslit kvöldsins
Stjarnan 2-3 KR
Fram 3-2 Valur
ÍA 1-3 Keflavík
Breiðablik 3-3 FH