

Undanúrslit Sambandsdeildarinnar fóru fram í kvöld þar sem Crystal Palace og Rayo Vallecano tryggðu sér sæti í úrslitum.
Crystal Palace vann 2-1 sigur á Shakhtar Donetsk og fór örugglega áfram samanlagt 5-2. Heimamenn komust yfir með sjálfsmarki áður en Eguinaldo jafnaði fyrir Shakhtar. Ismaïla Sarr skoraði svo sigurmarkið snemma í síðari hálfleik og tryggði Palace sæti í úrslitum.
Í hinum leiknum hafði Rayo Vallecano betur gegn Strasbourg, 1-0, og vann einvígið samanlagt 2-0. Alemão skoraði eina mark leiksins rétt fyrir hálfleik og reyndist það nægja spænska liðinu.
Úrslitaleikurinn verður því áhugaverð viðureign þar sem Crystal Palace og Rayo Vallecano berjast um titilinn.