fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Neymar lét hnefana tala á æfingu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. maí 2026 18:00

Neymar þénar vel í Sádí.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt fréttum í brasilískum fjölmiðlum lenti Neymar í átökum á æfingu hjá Santos þar sem hann á að hafa slegið og fellt 18 ára liðsfélaga sinn, Robinho Jr., eftir að hafa talið sig sýndan óvirðingu.

Globo greinir frá því að Neymar hafi orðið ósáttur þegar táningurinn, sem er sonur fyrrum brasilíska landsliðsmannsins og leikmanns Real Madrid og Manchester City, Robinho, fór framhjá honum með laglegri gabbhreyfingu á æfingu.

Neymar á þá að hafa sagt við unga leikmanninn að „taka því rólega“, en í kjölfarið blossaði upp rifrildi þeirra á milli. Deilan þróaðist fljótt í ýtingar og samkvæmt fréttum sló Neymar liðsfélaga sinn áður en hann felldi hann einnig með tæklingu.
Í framhaldinu voru báðir leikmenn fjarlægðir af æfingasvæðinu.

Bæði Neymar og Robinho Jr. höfðu verið í æfingahópi varaliðs Santos eftir að hafa verið skildir eftir utan leikmannahóps félagsins fyrir viðureign gegn Palmeiras. Santos undirbýr sig nú fyrir leik gegn paragvæska liðinu Recoleta í Suður-Ameríkukeppninni.

Fulltrúar Robinho Jr. eru sagðir hafa kvartað formlega yfir atvikinu við forseta Santos, sem gæti þurft að taka afstöðu til málsins á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London