

Manchester City hefur sett Enzo Fernández á radarinn fyrir sumargluggann, samkvæmt The Athletic.
Áhugi City er þó enn á frumstigi og félagið er einnig að skoða aðra miðjumenn, þar á meðal Elliot Anderson hjá Nottingham Forest.
Breytingar eru í vændum á miðjunni hjá City þar sem Bernardo Silva er á förum í sumar og óvissa ríkir um framtíð Rodri, sem á samning út árið 2027 en hefur ekki framlengt hann.
Fernández, sem leikur með Chelsea, hefur verið í umræðunni eftir að hafa gefið til kynna óvissu um framtíð sína. Hann fékk meðal annars tveggja leikja bann innan félagsins á dögunum.
Þá hefur hann einnig sagst hafa áhuga á að búa á Spáni í framtíðinni, sem hefur aukið orðróm um möguleg félagaskipti.
City er því að kanna stöðuna á markaðnum fyrir komandi tímabil.