
Liverpool hefur áhuga á að kaupa kantmanninn Abde Ezzalzouli frá Real Betis í sumar.
Samkvæmt spænskum miðlum er félagið tilbúið að borga um 35-40 milljónir punda fyrir þennan landsliðsmann Marokkó, sem hefur skorað 12 mörk og lagt upp önnur 12 á tímabilinu.
Liverpool er í leit að arftaka Mohamed Salah, sem yfirgefur félagið í sumar, og Ezzalzouli er sagður ofarlega á óskalistanum.
Kantmaðurinn, sem áður var á mála hjá Barcelona, er sagður opinn fyrir því að taka næsta skref á ferlinum og spila á stærra sviði.