
Tottenham er að leita að íþróttasálfræðingi fyrir karlalið sitt eftir hörmulegt tímabil.
Tottenham er í fallsæti þegar aðeins fimm umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni.
Roberto De Zerbi tók við liðinu á dögunum og varð þar með þriðji stjórinn á þessari leiktíð.
De Zerbi vill vinna í hugarfari hópsins með aðstoð íþróttasálfræðinga.
Félagið vill ráða inn framúrskarandi íþróttasálfræðing sem leggur áherslu á sterkari liðsheild og hugarfar.
Tottenham er í 18. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir West Ham, sem er í síðasta örugga sætinu.