

Vincent Kompany, goðsögn hjá Manchester City, virðist ætla að halda áfram ferli sínum í Þýskalandi eftir að hafa selt glæsilegt hús sitt á Englandi.
Kompany er mikill Íslandsvinur og hefur heimsótt land og þjóð.
Kompany, sem er nú þjálfari Bayern Munich, hefur náð góðum árangri með liðið. Bayern tryggði sér nýverið þýska meistaratitilinn og vann einnig dramatískan sigur á Real Madrid í Meistaradeildinni.

Hann hefur þegar skuldbundið sig félaginu til ársins 2029 og nú hefur hann selt sex herbergja lúxushús sitt í Hale Barns í Cheshire fyrir um 3,45 milljónir punda. Húsið, sem ber nafnið Springwood, var í eigu Kompany á meðan hann lék og starfaði á Englandi.

Eignin er afar glæsileg, með innisundlaug, líkamsrækt, kvikmyndaherbergi og sérhannað eldhús, auk sex baðherbergja.
Sala hússins hefur vakið athygli þar sem hún bendir til þess að Kompany sé ekki á leið aftur til Englands í bráð, sem gæti valdið vonbrigðum hjá stuðningsmönnum Manchester City sem hafa séð hann sem framtíðarstjóra liðsins.
Allt bendir því til að Kompany haldi áfram að byggja upp feril sinn hjá Bayern.
