fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“

433
Laugardaginn 18. apríl 2026 12:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Glódís, sem er auðvitað fyrirliði landsliðsins, jafnaði landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í sigrinum á Úkraínu á dögunum og í dag mun hún, ef allt er eðlilegt, slá metið gegn Englandi á Laugardalsvelli.

Karólína er góð vinkona Glódísar og segir hún að það sé ekki að sjá að hún sé að ná þessu afreki í samtölum við hana.

video
play-sharp-fill

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst. Maður myndi ekki vita af afrekunum sem hún hefur náð ef maður talar við hana.“

Glódís er eðlilega stolt af afrekinu en er uppteknari að leikjunum sjálfum á meðan hún spilar.

„Þetta er gríðarlega stórt og maður er ótrúlega stoltur af þessu. En þú ert í rútínu að fara að spila leik og það skiptir miklu meira máli. Eftir leik getur maður svo farið að spá í þessu.

Ég er búin að vita af þessu í smá tíma og það er ótrúlega gaman að þetta lendi þannig að við eigum tvo leiki heima á Íslandi. Það er mjög sérstakt að geta gert þetta hér með stelpunum, fjölskyldunni minni og öllum sem hafa verið með mér í gegnum þetta allt.“

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti
Hide picture