

Heitar umræður hafa skapast um það af hverju aðeins 1500 einstaklingar mættu á kvennalandsleikinn í gær, liðið vann þá góðan 1-0 sigur á Úkraínu í Þjóðadeildinni.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari liðsins, var verulega ósáttur með málið og kallaði eftir betri mætingu. Liðið mætir Englandi á Laugardalsvelli á laugardag.
Víðir Sigurðsson, fyrrum blaðamaður Morgunblaðsins ritar pistil á Facebook um málið. „Hvers vegna mættu bara 1.500 áhorfendur á heimaleik Íslands gegn Úkraínu í undankeppni HM kvenna í fótbolta á Laugardalsvellinum í kvöld? Leik sem skipti gríðarlega miklu máli fyrir framhald íslenska liðsins, bæði í þessari undankeppni og svo næstu keppni. Lið sem er búið að komast fimm sinnum í röð í lokakeppni EM og á raunhæfa möguleika á að komast í lokakeppni HM í fyrsta skipti ætti að fá meiri stuðning en þetta á heimavelli,“ skrifar Víðir á Facebook.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson fyrrum þjálfari liðsins segir að það þurfi að gera meira til að fá fólk á völlinn.
„Ég held það þurfi að skoða þetta í miklu stærra samhengi. Árið 2012 spiluðum við á móti Úkraínu líka, það var reyndar úrslitaleikur um að komast á EM. En þá sendi ég póst á um 70 fyrirtæki. KSÍ seldi 8100 miða á þann leik en um 6600 manns komu á leikinn. Oft hefur tekist að koma með marga yngri iðkendur á landsleiki kvennalandsliðsins. Það sást ekki núna. Áhugi helst mögulega í hendur við árangur og skemmtanagildi líka og mikilvægi leiksins hverju sinni. Ekki hefur tekist held ég að fá fleiri áhorfendur í Bestu deild kvenna. En 1500 manns á kvennalandsleik er ansi fámennt,“ segir Sigurður Ragnar sem þjálfar í Færeyjum í dag.
Mætingin á leikinn var slök en fyrir því gætu einhverjar ástæður verið. „Eg held að það skipti máli að það voru tveir æsispennandi körfuboltaleikir á sama tima og svo einn hamdboltaleikur. Allt úrslitakeppnisleikir. Ofan á það var CL. Það var því töluverð samkeppni um athygli í gær,“ skrifar Hafrún Kristjánsdóttir við pistil Víðis.
Pétur Sæmundsen bendir á alla þá íþróttaleiki sem fóru fram á sama tíma.
„Persónulega finnst mér 18.30 á virkum degi glataður leiktími, fullt af fólki að koma úr vinnu og krakkar enn á hinum og þessum æfingum. Svo var það bara samkeppnin. Það sem var í gangi í gær:
KR – Stjarnan í 8-liða úrslitum í körfubolta karla
Grindavík – Njarðvík í 8-liða úrslitum körfubolta karla
FH – Haukar í undanúrslitum handbolta karla
Liverpool – PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar
Atletico Madrid – Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar
Finnst sérstaklega magnað að UEFA skuli setja kvennalandsleiki beint ofan í leiki í meistaradeildinni hjá köllunum,“ skrifar Pétur.