fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Gary Neville borgar væna summu fyrir rásirnar hans Goldbridge

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum varnarmaður Manchester United, Gary Neville, hefur stigið stórt skref í fjölmiðlaheiminum eftir að fyrirtæki hans keypti YouTube-rásir áhrifavaldsins Mark Goldbridge.

Fjölmiðlafyrirtæki Neville, The Overlap, hefur greitt óuppgefna sjö stafa fjárhæð fyrir rásirnar The United Stand og That’s Football. Markmiðið er að byggja upp eitt öflugasta knattspyrnusamfélag á netinu.

Goldbridge mun halda áfram að stýra efni rásanna, sem samanlagt eru með um 3,7 milljónir áskrifenda. Samhliða kaupunum er fyrirhuguð mikil stækkun á starfseminni.

Meðal nýjunga verður þátturinn „Stick to United“, þar sem fyrrum leikmenn og blaðamenn munu koma að efni, auk daglegrar fréttaumfjöllunar undir heitinu „The Daily United“.

Einnig er stefnt að því að víkka út starfsemina og fjalla meira um önnur stórlið í Evrópu.

Samstarfið er talið marka nýjan kafla í þróun knattspyrnumiðla á netinu, þar sem hefðbundnir fjölmiðlar og áhrifavaldar sameinast undir einu þaki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti