Rayan Ait-Nouri er orðinn leikmaður Manchester City en hann hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið.
Þetta hefur enska stórliðið staðfest en um er að ræða bakvörð sem kemur til félagsins frá Wolves.
Ait-Nouri kostar City um 35 milljónir punda en þessi félagaskipti hafa legið í loftinu undanfarna daga.
Wolves er að missa annan lykilmann á stuttum tíma en Matheus Cunha var nýlega seldur til Manchester United.
Ait-Nouri verður hluti af leikmannahópi City sem spilar á HM félagsliða í sumar.