fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
433Sport

Segir Trent hafa gert ráð fyrir harkalegum viðbrögðum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 12. maí 2025 17:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að Trent Alexander-Arnold hafi allt eins búist við því að einhverjir stuðningsmenn Liverpool myndu taka harkalega á honum eftir að hann tilkynnti um ákvörðun sína að fara annað.

Samningur Trent við Liverpool rennur út í sumar og fer þessi uppaldi leikmaður þá annað, að öllum líkindum til Real Madrid þó svo að ekkert sé staðfest í þeim efnum.

Fjöldi stuðningsmanna Liverpool baulaði á Trent í 2-2 jafnteflinu gegn Arsenal í gær og var Van Dijk spurður út í þetta eftir leik.

„Stuðningsmennirnir brugðust svona við og hann þarf að sætta sig við það, sem og við hinir. Ég held að hann hafi jafnvel búist við þessu. Það eru tveir leikir eftir og svo fer hann eitthvert annað,“ sagði hann.

„Við erum til staðar fyrir hann og erum svo leiðir yfir að hann sé að fara því hann er frábær leikmaður, við höfum séð það undanfarin ár. Við munum sakna hans sárt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hnakkrifust í beinni eftir dramatíkina í gær – Sjáðu myndbandið

Hnakkrifust í beinni eftir dramatíkina í gær – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Segir að logið hafi verið að sér – „Svo var ég skilinn eftir“

Segir að logið hafi verið að sér – „Svo var ég skilinn eftir“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega
433Sport
Fyrir 2 dögum

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“